rennur valla í manni blóðið
Það rignir enn í borginni. Sit hin rólegasta og er að lesa blaðið. Lít yfir flugvallarsalinn, þar sitja 3 aðrir menn að bíða, ætli þeir séu ekki líka að fara á Ísafjörð. Það er nýbúið að hleypa um borð í vélina norður. Fullt af útlendingum, ætli þeir séu ekki að fara vinna fyrir austan. Lít á skjáinn, kl. 9:00 enn verið að innrita í ísóvélina, ég get enn lesið blaðið í rólegheitum. Ekki skrýtið að það sé svona dýrt að fljúga innanlands, þeir eru greinilega að fljúga með tómar vélar. Eða við virðumst bara vera 4 sem erum að fara vestur. Vona að við verðum ekki send með rörinu..... Lít aftur á skjáinn kl. 9:07 ísafjörður - innritun. Bíddu vélin á að vera farin, ætli það sé ófært? Einhver farþegi seinn sem er verið að bíða eftir? Vélin biluð? Ætti kannski fara tékka á þessu? nei, les bara blaðið.
tikk takk tikk takk, tíminn líður 9:09..."-Já það er einhver Kristjana sem er ekki komin um borð...."
hehehehe konunni í afgreiðslunni finnst þetta ekki eins fyndið og mér, eiginlega virtist henni bara alls ekkert finnast ég fyndin. Labbaði skömmustuleg en samt að reyna að halda niðri í mér hlátrinum út í vél. Þar bíður stútfull vél og helmingurinn útlendingar...of course er ég í aftasta sætinu og þarf að labba í gegnum vélina...með all eyes on me!
hmmm hvað ætli þessir útlendingar séu að fara vinna fyrir vestan??

2 Ummæli:
HEHEHEHEE...... alltaf með á nótunum! Milla Snilla stendur undir nafni..
Höfundur
Nafnlaus, Þann
15. október 2006 kl. 17:08
Annat var det när denna lilla utlänning skulle åka... haha, tomt plan, mer personal än resenärer... hehe
Kram
Höfundur
Nafnlaus, Þann
17. október 2006 kl. 08:28
Skrifa ummæli
<< Heim