Millusinn

þriðjudagur, júlí 11, 2006

Veðrið á eyjunni

Jæja hvað er nú samt málið með veðrið á landinu!! Veit þetta er leiðinlegt umræðuefni en ó mæ god, þetta er bara löngu hætt að vera fyndið. Svo er eitthvað verið að plata mann með því að skella einum og einum góðum degi inn í og mar heldur áfram að halda í vonina um að nú muni hlutirnir breytast en svo vaknar mar næsta dag og aftur komin 6 stiga hiti og rigning. Skoon vinkona benti mér samt á þá skemmtilegu staðreynd að á Íslandi er meðalhiti yfir árið 4 gráður, sem þýðir að mestmegnis af árinu búum við í ÍSSKÁP! Belive or not, þið sem voruð ekki búin að pæla í þessu en ísskápshiti er einmitt 4 gráður.
Ég er nú ekki vön að vera að pirra mig á þessu en kommon, ég nenni ekki einu sinni í fjallgöngur og þá er mikið sagt!!

1 Ummæli:

  • Hlakka svo til að fara í sumarfrí og on the road með ykkur kellunum!.. itt vill bí brilljant..MÚHAHAHAHAHAHAH.. ekkert ísskápsveður þá!!!! bara kalt í kæliboxinu..

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 12. júlí 2006 kl. 22:10  

Skrifa ummæli



<< Heim