Millusinn

sunnudagur, október 08, 2006

bara bull

Vorum að horfa á sæta bandaríska bíómynd, man ekki hvað hún heitir, skrýtið þetta með að ég virðist ekki geta munað bíómyndir og leikara, bara festist ekki. En allavegna er ekki sátt sko, laugardagur horfum á sæta stelpumynd....sem svo endar ömurlega...eða ég er allavegna ekki sátt...þau finna hvort annað, fall in love en ákveða að vera ekki saman...hvaða bull er það?? Sonja segir að þau að þau hafi bæði verið sátt og það sé það sæta isss er ekki að kaupa þetta sko
hehehehe pirringurinn gæti kannski verið þar sem ég var einmitt að böggast yfir því að eiga ekki kærasta og vá finnst þau hefðu bara átt að vera sátt við það sem þau höfðu, meina komm on ekki eins og tækifærin séu endalaus ;) allavegna pirringur skýrist af því að þegar ég kem heim jæks finn ég þessa huge kónguló á baðinu brrr fæ enn gæsahúð og þurfti að drepa hana sjálf. vafði hálfri klósettrúllu og smellti svo skónum mínum yfir hana pjúk algjör viðbjóður! Það er nákvæmlega á svona stundum sem ég vildi óska að ég byggi ekki ein. Veit alveg ég get enn hringt í mömmu en er að reyna venja mig af því :)
Talandi um kærasta, var að lesa pistil í Fréttablaðinu eftir snillingin hana Hörpu, minnir hún heiti Harpa, hún ætti gefa pistlana sína út í bók eins og Jón Gnarr gerði, veit ég myndi allavegna gefa mér hana í skóinn. Hún var að skrifa um datemenninguna á Íslandi, hvað er einmitt málið með hana??? Mar spyr sig akkuru má ekki bjóða á date? Þarf mar þá að gifta sig? Má engin sjá mann á litla landinu því þá færu sögurnar af stað? Eru íslenskir strákar bara chicken? og af hverju má ekki stelpa bjóða á deit? Ef ég byði á deit yrði gaurinn bókað skíthræddur. Er ekki alveg að ná þessu? Finnst "drekka sig dead hittast í bænum" aðferðin ekki vera að gera sig lengur... En væri alveg til í vita hvernig þetta er og afhverju? Væri gaman skoða hvernig flest pör á íslandi hafa hist? spurning hvort það sé öðruvísi en annarsstaðar?
Ekki samt fara að halda að ég sé orðin algjörlega desperat, það er ekki málið sko, hljómar kannski ekki þannig en Snillan er bara mjög sátt þessa dagana og við Skoon vorum einmitt að tala um hvað við hefðum það ótrúlega gott. Hljómar sem amerísk klisja en það fylgir því ákvðið frelsi að vera single, sem er oft mjög þægilegt.
En nóg um það, endalaust hægt tala um þetta...meira later ;)

Verð að segja ykkur og monta mig smá! Til hamingju HAMRAR!!! Íslandsmeistarar í bandy, ekki slæmt! Strákarnir voru að gera það þvílíkt gott!!! og rústuðu mótinu ekkert smá gaman að horfa á þá. Við Skoon erum búnar að vera á bandymóti í Keflavík í allan dag. Lilli brói var að keppa með akureyringunum og endaði mótið snilldarlega...með íslandsmeistartitli. Ekkert smá glöð að hafa farið að horfa á þá og TAKK friend fyrir að koma með, þótti ekkert smá vænt um það.

well komin tími á svefn...er eiginlega endalaust að reyna að finna mér eitthvað að gera..er nebblega ekki að nenna að fara að sofa því ég nenni ekki að vakna því þá þarf ég að klára verkefnið mitt sem ég nennti ekki að klára í gær. hehehe skólinn byrjaður og þá fer skipulagið (skipulagsleysið) alvarlega að banka upp á. God natt din katt ät din hatt

2 Ummæli:

  • Myndin heitir Prime.. eitthvað fór þetta inn á sálina hjá mér.. því að þó svo ég hafi sofið yfir myndinni.. var mig að dreyma endalausa vitleysu um að þú og Sonja væruð að rífast um endinn... og ég vildi ekki vita hvernig myndin endaði.. bla bla.. Mig dreymdi líka um daginn að þið ætluðuð að kaupa minjasafn.. og hafa það á Laugarveginum.. þú varst svo að rukka mig um minn hluta húsaleigunnar.. þar sem ég væri nú einn af eigendunum.. hmm.. ég var ekki alveg að gúddera það.. en ætlaði held ég að reyna að skrapa saman einhverjum aurum.. ótrúlegt hvað mann dreymir.. sérstaklega þegar mar er farinn að sofa stórann hluta dagsins.. og draumarnir fara að verða skrýtnari og skrýtnari.. ég var t.d.. komin inn í veggfóðurþátt í dag.. en ég sofnaði aðeins yfir sjónvarpinu en heyrði alltaf í Völu Matt... pínu krípi stöff..! en heyri í þér kella.. gangi þér vel að læra.. duglega skólastelpa..;)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 8. október 2006 kl. 22:22  

  • hehhe kaupa minjasafn, ekki svo vitlaus hugmynd, kannski næsta hugmyn til framkvæmdar?? :) hvað er annars málið með þetta blogg, virðist ruglingslegra en draumarnir þínir hhehe bara gaman af því..gott að vita að það eru hormónar hjá mér líka :)

    Höfundur Blogger Milla, Þann 9. október 2006 kl. 23:06  

Skrifa ummæli



<< Heim