Millusinn

mánudagur, október 09, 2006

bjór, tómatsósa, hunang og undanrenna

Það er mánudagsmorgun og ég heyri að það er byrjað að rigna úti, ég er sjúklega úldin, var allt of lengi að lesa og fór því allt of seint að sofa, hárgreiðslan er ekki mönnum bjóðandi og ég er enn í bleikröndótta ofþvegna Snoopy hlírabolnum. Ég er stödd fyrir framn ísskápinn minn opna hann og kem þá auga á bleika undanrennuna. Bros stórt bros færist yfir, jammi Cheerios með rúsínum í morgunmat. Þetta eru jólin, þetta er eins og kókópöffs á sunnudögum í Svíþjóð. Meira þarf ekki til, deginum reddað. Vá hvað ég er sátt við að vera svona einföld eða kannski frekar að fá að lifa svona einföldu lífi, meira þurfti ekki til en að eiga undanrennu í annars mjög tómlegum einhleypanámsmannaísskápnum mínum. Takk fyrir að gera líf mitt einfalt!

1 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim