Skemmtileg frétt á mbl.is í dag :)
Hugleiðing fyrir helgina keddlingarnar mínar :) og svo góða skemmtun
Drukknar konur hvattar til þess að vera í buxum
Lögreglan í Suffolk á Englandi hefur hrint af stað herferð þar sem konur eru hvattar til þess að vera í buxum þegar þær fara út á lífið. Í tímariti sem gefið var út af lögreglunni eru ljósmyndir af dauðadrukknum, ungum konum liggjandi á jörðinni með skilaboðum um að konur eigi ekki að bera allt þótt drukknar séu.
„Ef þú hrinur í jörðina eða deyrð áfengisdauða, mundu þá að pilsið þitt eða kjóllinn getur flettst upp um þig," segir í tímaritinu. „Þá gætirðu verið að sýna meira en þú ætlaðir þér ... gerðu það fyrir okkur að vera í huggulegum buxum og gættu þess áður að hafa farið í vaxmeðferð."
Þá eru konur beðnar um að verða ekki viðskila við vini sína, hringja á leigubíl til þess að komast heim og gæta að sér í áfengisdrykkjunni.
Tímaritið heitir Safe! eða Öruggar! og er hannað með ungar konur í huga til að vara þær við þeim hættum sem geta fylgt því að verða dauðadrukkin úti á lífinu. Reuters segir frá þessu.

3 Ummæli:
Las einmitt um þessi ráð löggunnar. Enskar stelpur eru þekktar fyrir að vera í stuttum pilsum og engum sokkabuxum í hvaða veðri sem er, með fjólublá læri vegna kulda - þessar elskur;) Stína
Höfundur
Nafnlaus, Þann
16. júlí 2006 kl. 22:13
Hörru, lever du, eller??
Har messat och ringt, men inget svar.... vad är det fråååågan om?
Pöss o köss, hör av dig
Höfundur
Nafnlaus, Þann
8. ágúst 2006 kl. 13:55
hæ hæ sweety
hehe góð ráð sem ég tek til mín.... En verð að monta mig, helduru ekki ad undirrutud hafi hjolad til Dalvikur um helgina.....klapp klapp á bakid.... tu hefdir nu ekki truad tessu upp a mig :) heheh Dagny hjolagarpur
Höfundur
Nafnlaus, Þann
5. september 2006 kl. 18:18
Skrifa ummæli
<< Heim