Millusinn

þriðjudagur, október 10, 2006

Heiminum fjölgandi fer

Vó það er allt að gerast í kringum mig, það fæðast hérna bara börn á hverjum degi. Þetta er dásamlegt! Guðbjörg og Gestur eignuðust litla stelpu í dag, Lilja og Beggi eignuðust stelpu í gær, púkinn hlýtur að vera á leiðinni hjá Hörpu og vá allar þessar óléttubumbur í kringum mig og þið nýfæddu yndislegu kríli. Sé fram á mörg skemmtileg boð um passanir og það skemmtilegasta af öllu, fullt af barnaafmælum. Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að fara í barnaafmæli, fyrir utan allar kökurnar þá tekst mér alltaf að æsa alla krakkana og skapa fullt fullt af læti, finnst það ekkert smá skemmtilegt! Svo er bara svo krúttlegt, allir haugdrullugir í fínasta pússi, með súkkulaðiköku út á kinn, orðin velvirk af hömlulausri gosdrykkju og massa spenna í loftinu. BARA GAMAN.

1 Ummæli:

  • Elsku dúllan mín, velkomin hvenær sem er, Snædís er 25 maí og Klara 4 október, alltaf gaman að fá fólk í afmæli sem dregur að sér börn og gerir þau bandbrjáluð, stemmari stemmari:)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 12. október 2006 kl. 23:35  

Skrifa ummæli



<< Heim