Millusinn

sunnudagur, júlí 02, 2006

Allt að gerast á Ak.

Jæja þá er Snillan mætt á Akureyrina aftur, það er bara staðreynd held ég, Beggi og Bogga eru ekkert að fara losna við mig sem næturgest nema þau fari að koma suður. Frænka mín litla er enn jafn dásamleg, fyndið hvað hún er búin að breytast á þessum 5 dögum, bara búin að mannast og þroskast litla daman :) Hún er ekkert smá góð, lúrir bara, drekkur og pissar á pabba sinn. Nú er ég alveg að skilja þetta þegar fólk eignast börn og ekkert annað kemst að...ég er bara dáleidd yfir dúllunni, er bara alveg sama um allt annað, gæti setið í marga klukkutíma og bara glápt á dúlluna og dáðst að henni. Er audda búin að drita myndum af henni, set þær inn á Speisið mitt á eftir.
Svo eru líka góðar myndir af Enduro mótinu sem var á Akureyri í gær, þar sem Beggi bróðir gerði það gott!!! Náði 15 sæti af 42 og var einn af þeim 16 sem náðu 4 hringum...liggaliggalá...bara svona smá mont af brósa sínum :) Mamma og Pabbi mættu líka á mótið og eins og mamma er búin að vera á móti þessu og ekki að skilja af hverju hann þarf að stunda svona hættulegt sport, eins og henni fannst, þá er sú gamla bara búin að skrá sig í Pit stop liðið á Klaustri á næsta ári :) bara gaman!!!

Hitti Dagný, Daizy Maizy einnig kölluð´, í dag. Áttum lövlí dag, eins og okkur er líkt þegar við loksins hittumst og öppdeitum síðastliðið hálft ár. Þú ert snillingur Dagga mín, eins gott að við höldum þessu áfram þó alltof sjaldan sé!!!

Svo var Fínn Fimmtudagur á fimmtudaginn síðasta. Er að fíla það að fínir fimmtudagar séu komnir á aftur, enda algjör þörf á að lengja þessar alltof stuttu helgar. Hittumst núna heima hjá Helgu hjúkku, í bjútiful húsinu hennar og eldaði hún fyrir okkur humar, með hvítvíni og skelltum okkur svo í pottin langt fram á kvöld. Dásamlegt kvöld!!! Mæli með fleiri svona kvöldum. Því miður engar myndir frá kvöldinu...enda ekki talið myndahæft kvöld...

2 Ummæli:

  • Milla, þú hreinlega verður að fara að koma með eitt kríli. Það heyrist alveg kling kling-hljóðið í þér í gegnum tölvuna ;o) Til lukku Beggi. Góð frammistaða! Þetta er þvílíkt erfið íþrótt en nóg af adrenalinflæði ha. Ég er einmitt að fá nýja hjólið mitt þann 14.07. Ég byrja nú bara rólega samt-KTM 250 EXC F "07. Vil síður lenda á bakinu ef ég sný aðeins of mikið upp á rörið. Milla þú verður líka að skella þér á hjól...Við tökum svo Klaustur eftir 2-3 ár ;o)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 6. júlí 2006 kl. 13:19  

  • Veit nú ekki alveg þetta með kling kling hljóðið... finnst nóg að hitta litlu dúlluna mína, knúsa hana og setja hana svo í hendurnar á foreldrum sínum þegar hún fer að grenja eða þrumar í bleyjuna.
    En krossari það er allt annað mál, já mar er alveg til í að skoða það. Líst vel á að þú sért búin að kaupa þér hjól. Er einmitt búin að prófa Begga hjól, brúmm brúmm ekkert smá gaman :)

    Höfundur Blogger Milla, Þann 11. júlí 2006 kl. 16:48  

Skrifa ummæli



<< Heim