Litla dúllan er fædd!!!!
Litla rúsínan er fædd, hún er yndisleg!!! Hún er svo sæt og falleg, bjútiful lítil stelpa :) Hún fæddist í dag kl 14:27, 51 cm og 3470 g. Tók heila eilífð að koma sér í heiminn en gekk rosa vel og eru þær mæðgur eldsprækar. Komnar myndir inn á My spaceið mitt, endilega skoðið þessa dúllu :) Að sjálfsögðu dreif sig hele familjen norður þegar fréttist að hún væri að koma í heiminn. Föðursystirinn kláraði að vísu eitt gott djamm í borginni fyrst en dreif sig svo norður og fæddist bjútíið í kaffipásunni á Blönduósi. Þannig nú er Milla, mamma og pabbi (eða amma og afi hehe) komin norður. Pabbi og Agnes koma frá Ísafirði og tvíbbarnir Áslaug og Sunnneva að sunnan á morgun. Allir mættir að skoða prinsessuna. Var ekkert smá fyndið þegar við pabbi vorum að keyra, þvílík spenna í bílnum og munnræpan alveg á fullu svo um leið og símtalið kom varð þvílíkt spennufall, það var eins og 100 kg hefðu horfið á einu bretti....og svo komu tárin, vá ég er búin að grenja og grenja...virkilega brosað í gegnum tárin...mátti ekki einu sinni sjá bróðir minn þá fór fossinn af stað aftur.....ooohhh þetta er bara yndisleg tilfinning...get ekki beðið eftir að fara aftur upp á deild til þeirra.

1 Ummæli:
ó mæ god, það koma bara tár við að lesa um tár :) hvernig verður þetta eiginlega í septemberlok???????
kv. Guðbjörg
Höfundur
Nafnlaus, Þann
26. júní 2006 kl. 11:15
Skrifa ummæli
<< Heim