Föðursystirinn

Er farin að telja niður og bíð já eiginlega bara frekar óþolinmóð. Hvernig ætli það sé að ganga með þetta í 9 mánuði?? Ég get ekki einu sinni beðið eftir jólapökkunum, er alltaf löngu búin að káfa á þeim öllum og hrista þá til og frá...já og líka þeim sem þú felur uppi í efri skápnum inni í svefnherbergi mamma :) uss ég get ekki einu sinni beðið með páskaeggið mitt og var eiginlega alltaf búin með mitt og byrjuð á egginu hans Begga bróðir þegar loksins kom að þessum páskum. Finnst þetta bæðevei fáranlegir siðir...láta börnin bíða

1 Ummæli:
Bið getur verið erfið.. ó já.. en þá er gott að reyna að leiða hugann að öðru.. alltaf er hægt að hringja í vinkonur og fá þær með sér á kaffihús, bíó, bjóða þeim í mat.. möguleikarnir eru óteljandi.. Bið getur verið skemmtileg.. bið getur þýtt opnar dyr að nýjum tækifærum...bla bla..hehe
Höfundur
Nafnlaus, Þann
18. júní 2006 kl. 23:09
Skrifa ummæli
<< Heim