Drottningin í koti sínu
Við Stína vorum einmitt að koma af kaffihúsi og tala um hvað okkur finnst við ótrúlega skemmtilegar og fyndnar, erum endalaust að hvetja hvor aðra til að blogga meira...eða hmmm byrja að blogga aftur. Við vorum audda einstaklega fyndnar á Ítalíublogginu okkar, og hehe fannst mér ég svo bruled fyndinn að ég var ekki viss hvort ég eða Stínan hafði skrifað það...hehe pæliði í því að finnast mar svona skemmtilegur og eiga svona fyndnar vinkonur, valla hægt að láta sér leiðast mikið þegar mar gengur um alla daga umkringdur sjálfum sér og meisturum. Eða eins og amma mín ofurpæja sagði "Þú ert drottning, hver helduru að þurfi kóng þegar mar er svona mikil drottning"??? Já mar spyr sig, góð speki hjá gömlu :) Og einstaklega góð speki að draga fram þegar mar er að missa sig í sjálfsvorkuninni og heldur að drottningin geti ekki lifað án þess að hafa kónginn hjá sér. En isss greinilega er það hreinasti misskilningur....segi samt ekki að það væri nú skemmtilegt að fá kóng í kotið svona einhverntímann en þangað til ætla ég að njóta þess að vera Queen í mínu eigin ríki! Og Skoon þessi umræða er dead....hmmm þangað til næst allavegna

1 Ummæli:
Svo rétt hjá þér Mills......þetta snýst nebblega um að nota tímann þangað til!!! Að þurfa bara að hugsa um mína eigin boru er bara...bara ómetanlegt og í raun lúxus ;)
Lengi lifi drottningar og lúxus
Höfundur
Nafnlaus, Þann
14. júní 2006 kl. 19:59
Skrifa ummæli
<< Heim