Millusinn

sunnudagur, september 25, 2005

Brún og sæt sólstrandargella

Úff vá mar ferðin tók greinilega á....helgin er tótallí bara búin að fara í veislur og leti/sofa! Hef ekki haft orku í neitt nema drössla mér í föt til að koma mér í veislurnar og þess á milli bara zlafen sie in das zófa...."geisp" hámark letinnar nennti ekki einu sinni að ná mér í vatn- lá upp í sófa og gat varla kyngt ég var svo þyrst en vá gat bara ekki staðið upp úr sófanum þannig ég lá þarna og reyndi að safna sem mestu munnvatni til að geta kyngt og slakað aðeins á þorstanum.... það var sem sagt ekki mikið sofið í ferðinni...en ferðasagan kemur vonandi seinna ásamt mjög skemmtilegum myndum ;) hmmm okkur fannst við ótrúlega fyndnar í þessari ferð og urðum að dokumenta allt á vélina... ótrúlega skemmtilegar...
Fór í kósý 30 afmæli hjá Atla í gærkvöldi. Overeataði á Ástuveitingum þannig ekki var mikið pláss eftir fyrir bjórinn, endaði heima upp í sófa hjá Slaugu óvenju snemma miðað við laugardagskvöld

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim