Millusinn

laugardagur, september 03, 2005

Esjufarar

vá var búin að gleyma hvað það er gegt kikk að labba á fjöll. hvernig er það eiginlega með okkur fólkið, mar virðist alltaf falla í sama gamla farið sama hvað....heilinn virðist alltaf gleyma þessu góða, mar verður svo ánægður með sig þegar mar er búin að standa sig í einhvern tíma að mar á bara skilið að tjilla og gera ekki neitt, heldur leyfa sér að morkna...virðist gilda það sama með allt sem er gott fyrir okkur, mar tekur sig á í einhvern tíma t.d fer að borða hollt, æfa í ræktinni, út að skokka, labba á fjöll svo verður mar svo ánægður með sig að mar má alveg slappa af í einhvern tíma.....svo verður þessi tími alltaf lengri og lengri og eftgir því sem hann verður lengri því god damn erfiðara er að koma sér aftur af stað.
En vá hvað það er gott þegar manni tekst lox að drulla sér aftur af stað. Labbaði á Esjuna með Valdísi í dag. Dásamlegt, ótrúlega flott veður og já bara snilld. Þetta er svo magnað, þvílíkt vellíðunarkikk og mar er svo ótrúlega ánægður með sig. Hehehe í góðum fíling á fjallinu mikla fékk líka þá snilldarhugmynd, sem einnig oft virðist fylgja þessu vellíðunarhormómi, mikilmennskubrjálæði, allavegna hugsaði "vá þetta er æði, ætti kannski að reyna að fara vikulega núna, alltaf á laugardagsmorgnum....hehe je rigt! góð hugmynd en efasat um að hún haldi..
Kvalitíhelgi hjá okkur Valdísi, út að borða í gær, hvítvín, eftirréttur, gott kaffi og kjafta og kjafta og kjafta, endalaust gaman! Bráðnauðsynlegt að catch up latest slúður.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim