Millusinn

laugardagur, september 03, 2005

Kajakfarar

Fórum á þetta já þvílíkt skemmtilega hámóklúbbskvöld á fimmtudaginn! Snilldin ein. Hmm þið sem hafið ekki enn farið...getið eiginlega gleymt því...okkur tókst held ég að rífa upp allt svæðið þanna og því lítið þar að sjá núna....þetta er audda bara fyndið, veit ekki hvort hassberurnar séu eftir púl eða constantly hláturskast...vá lítið hægt að róa þar sem orkan fór í að liggja í hláturskasti....Eru eiginlega svona "had 2 b there moments" en mjög skemmtileg í minningunni...t.d. þegar við vorum 4 fastar þversum í fenjunum með báða endana á kajakanum á landi, hehehe ein fór að bjarga hinni og festi sig líka. Losuðum okkur en enduðum afturábak svo var svo þröngt að við gátum ekki snúið við og þurftum að róa afturábak, hihihihi professionals á ferð þanna sko. Styð tillöguna um að breyta nafninu, og image krúsins. Tillögur sendist inn og tekið fyrir á næsta fundi...Actionmen...bústaðaferð næst, verðum eiginlega að finna eikkað gott action fyrir þá helgi...komin tími á Skorradalssund aftur???
Já svo var það þetta með hestaferðina í vor....ég er búin að skrá mig á kvöldvaktir í vor þannig ég held ég komist ekki. Algjör óþarfi að panta hest fyrir mig. Get kannski skellt í nokkrar pönnsur eftir vaktina og kíkt á ykkur...

Fórum í sund eftir kajakferðina, til að róa (hehe) þreytta vöðva. Algjör dúllulaug þarna á Stokkseyri, boðið upp á kaffi í pottinum og fínasta körfuboltakarfa í boðinu. Íslenskt já takk! Fórum svo að borða á fjöruborðinu sem er audda bara snilldarstaður...pant fara þangað næst á rómantískan date (bara svona að koma með tillögur til ykkar strákar, þið virðist nebblega alveg vera uppiskroppa með hugmyndir).

well well hlakka til að sjá ykkur næst hámurnar mínar og hvet ykkur til að fara að æfa skemmtiatriðin fyrir bústaðaferðina eða safna selfitu fyrir sundið mikla

2 Ummæli:

  • hehe ég sé ykkur ofuriðjur fyrir mér eins og í teiknimynd; fastar á milli fenja - I wish I were there. Heyrðu á svo ekki að fara að skipuleggja Londonferð? Ég get örugglega fengið einhverja konunglega veltamda gæðinga lánaða hjá Betu drollu. Nú svo má örugglega sigla á kajak á Thames eða fara á Jetski með því að láta skemmtiferðabátana draga okkur. The sky is the limit, later Sctina

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 4. september 2005 kl. 11:32  

  • selfita, selfita!!!!!

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 8. september 2005 kl. 14:54  

Skrifa ummæli



<< Heim