Dæjlige Danmark og pige aften
Ljúfa ljúfa ljúfa líf, eintóm hamingja. Er að segja ykkur það, svona á þetta að vera, finn bara svona sælugleði og hamingju! Snillipill er komin í sumarfrí í land ligeglade ;) Eftir hrikalegt djamm í reykjavíkinni æddum (hmmm kanski ekki alveg, meira svona skreið...) við Sonjan út á völl og skelltum okkur til Köben jei jei jei. Smá svona þreyta og þynnka í vélinni sem að sjálfsögðu var fljót að hverfa þegar the lövlí Stína tók á móti okkur með danska fánann og Ískaldan Kalla Bergs! Ekkert smá gaman að hitta hana og knúsa. Gærdagurinn var svo bara snilld hmmm bjór, shopping mopping, hitta stelpurnar, sitja á kaffihúsi, út að borða, rölta um, öppdeita slúður, hitta Hauk og DAGNÝ músí mús knúsí snús bara endalaust kósý. Svo fóru þau til Póllands í morgun og ég var eftir með Dagný. Svo erum við Dagný búnar að eiga snilldar dag í dag, alveg dásamlegan. Erum pretty much búnar að hjóla alla Köben, fara á kaffihús, kíkja á loppmarknad, versla og slúðra og tala og beisikklý taka söguna eins og hún leggur sig síðasta árið. bara gaman. Kíktum á Þórir og fengum okkur að borða á þanna íslenska þvottahúsakaffihúsinu. Enduðum svo á kaffihúsi í SJÖ tíma!! já já sátum á sama kaffihúsinu allan tímann. Ekkert smá gaman það var lifeband að spila jazz og við bara í góðum fíling. Þegar við föttuðum að við vorum eiginlega búnar að smakka alla kokkteilana á listanum ákváðum við að tékka á nýjum stað. Enduðum á áströslkum stað þar sem hámarksaldur hefur verið svona 18 ára! en það fyndna var að við vorum eins og sogskálar þanna, veit ekki alveg hvað það var en ég var eiginlega farin að spá í hvort annað brjóstið hefði dottið út eða gat á pilsinu þannig brókin flassaðist eða what the hell. En Dagný audda kom með svarið, hvað höfum við sem hinar 18 ára hafa ekki heheh jú óf course - Reynslu!! Er að segja ykkur það 18 ára guttar flykktust að okkur og reyndu að tæla okkur í erótískan dans hihihi við Dagný audda tístum fyrst og fannst þetta gegt fyndið en svo bara hey rólegir, við enduðum á að flýja staðinn þegar þeir voru búnir að króa okkur af inní horni og við enn í kaffi ak gírnum. þetta var eiginlega svona ítalíuflshback, gaman fyrst en svo bara jæks. let go.
En en en ótrúlega skemmtileg pige aften með dagný minni, bara dásamlegt!
Er farin að slefa á úlnliðina af þreytu, vi ses og farvel :)
En en en ótrúlega skemmtileg pige aften með dagný minni, bara dásamlegt!
Er farin að slefa á úlnliðina af þreytu, vi ses og farvel :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim