Millusinn

laugardagur, júní 25, 2005

Laugardagskvöld í leti

Laugardagskvöld og algjör leti í gangi. Þarf að gera 100 hluti en nenni ekki að byrja á neinu, er nebblega búin að sannfæra sjálfa mig um að ég vinni best undir pressu þannig að ég er að spá í að geyma allt sem ég þarf að gera fram á síðustu stundu ;)
Við Skoon fórum í Jónsmessugögnu í gær, var nú eiginlega prumpganga, ekkert mikið´fútt í henni sko. Enda 150 manns og allir í einu holli, þannig mar stóð í rokinu og beið eftir síðasta manni á 20 min fresti. ekki alveg mín sterkasta hlið, að bíða eftri fólki í göngu. En það átti víst ekki að vera mikil maraþonganga heldur bara eikkað svona rólegt í náttúrunni. Hentaði Snillunni ekki alveg en gott að komast smá út og kíkja á náttúruna, og ekki leiðinlegt að hafa Skoon með. Takk fyrir labbið dúllan mín. Leigðum okkur svo mynd og tókum með okkur góða nestispoka (sem við áttum sko þokkalega skilið þar sem við vorum búnar að vera í hörkulabbi=). Enduðum báðar á að sofna í sófanum og vaknaði ég rétt fyrir hádegi í göngufötunum og með stirðan hnakka og bogið bak, ekta sófastelling.
Svo erum við beibsin að fara út eftir 6 daga! ég er svo spennt að ég er meira að segja búin að athuga hvenær flugrútan fer. Svo var ekkert smá gaman að heyra í stelpunum úti í Köben og víííí þá lox fór hlakki hlakk virkilega af stað. Vikan núna þangað til við förum á líka eftir að vera svo gegt fljót að líða. Erum nebbelga að fara í 3ja daga göngu með krökkunum í vinnunni. Löbbum í 3 daga, gistum í tjaldi í 2 nætur og erum bara með hele klabbet á bakinu, mat, tjöld, dót og alles. Engin smá challenge fyrir krakkana og ekkert smá gaman að upplifa þetta með þeim. Þetta er bara það skemmtilegasta í vinnunni og fær mar sjálfur ekkert minna kikk út úr þessu heldur en þau. Bara gaman.

2 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim