Millusinn

sunnudagur, júní 05, 2005

Spurkóla og Sinalco

Til hamingju íslenskir strætóvagnstjórar!, sem sigruðu starfsbræður sína auðveldlega í ökuleiknikeppni nú á dögum. Verst bara að strætókefri á Íslandi er svo lamað að þeir geta ekki notað þessa færni sína, uss usss ætlaði að koma með lamaðann iðjubrandara um gildi og trú EN fékk eiginlega bara alveg nóg fyrir allt árið af iðjubröndrurum á kynningunni um daginn þar sem við fengum öppdeit af Garðari sem nú er búin að klippa sig, grennast og er mun evróspskari í útliti. Stína og Stína verst að þetta var ekki fjrakennt mar, en ég glósaði nokkuð vel þannig að ég get sent ykkur eintak ef þið ´viljið' fá hugtökin á íslensku úr nýju bókinni...endilega sendið mér línu....

Mesti veiðidagur einstakra kvenna á Íslandi haldinn hátíðlegur, allur flotinn í landi og litlir sjóarar bíða glaðir (lesist graðir) við hvert götuhorn og mín situr hérna ein að klára nestið úr bakpokanum síðan í gær. teldist ekki góður árangur í félaginu sko. Komst ekki einu sinni á djammið í gær, en Áki ofurorka skrapp í bæinn, treysti honum alveg til að grípa einn góðan fyrir mig ef hann staulast framhjá. Snillusinn var dead eftir helgina. Snilldar óvissuferð á fimmutaginn með körfunni, ekkert smá góður hópur og ekki verra eftir að fleiri bullarar bættust í hópinn. Til að sanna íþróttaeðlið byrjuðum við á tveggja tinda göngu (þar sem við erum tveggja tinda konur), förum í ljúfa Lónið of hossuðumst svo eftir eðal íslenskum vegum í Strandarkirkju. Bara fyndið, árið 2005 og mar er enn að hossast á 30 eftir ómalbikuðum sveitavegum, ekkert smá kósý og audda enn meiri ástæða til að sjússast meira. Ekki skrýtið að allir voru alltaf dead á sveitaböllum í denn, fólk búið að keyra í gegt langan tíma til að komast. Ótrúlega sæt kona í sveitinni sem tók á móti okkur með alvöru feita kjötsúpu og Nýmjólk í könnu, svona alveg real, ótrúlega kósy og ekkert smá sæt kirkja. Við vorum búnar að hringja í konuna á undan okkur og spurja hvort hún væri ekki með öl og jú auðvitað átti hún öl fyrir okkur.Heheh svo mættum við á staðinn og keddla bauð upp á Appelsín og Maltöl, liggur við Spurkóla og Sinalco. Erðakki bara krúttlegast...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim