Millusinn

mánudagur, júní 06, 2005

Þvottaleysi

Var að lesa hjá Guðbjörgu vinkonu að það er víst þannig að ef mar er aldrei heima hjá sér þá virðist óhreini þvotturinn hlaðast óendanlega og mar skilur ekkert í þessu er svo aldrei heima hjá sér til þess að kippa þessu í lag og á því valla brók til að fara í suma dagana. En Snillan snjalla er búin að finna ráð við því. Set í vélina á kvöldin, þvottaefni og alles. Stilli svo klukkuna kl 6, hleyp fram í þvottahús, smelli á starttakkan og mmmm skríð svo aftur upp í rúm. Ekkert smá gott að vita að mar má sofa klt í viðbót. Svo þegar ég vakna kl 7 er þvotturinn reddý og skelli honum á snúrurnar. ég þoli nebblega ekki þegar þvotturinn er búin að liggja hálfan daginn í vélinni og súrna, jæks! en habahaba búin að leysa þetta! Hmmm ég ætti kanski að fara að vera með svona húsmæðrapistill hénna vikulega. Luma greinilega á góðum húsráðum, gæti lumað uppskriftum og góðum hekl og föndurtrikkum með líka.......eða hmmm kannski ekki,,, yrði fljótt uppiskroppa með hugmyndir held ég, en ef þið lumið á einni góðri endilega smellið því í kommentið.

Heyrru svo smá lesning fyrir svefnin, fyrir ykkur sem hafið gaman af tölfræði ;) einn gaurinn sem var með okkur var með GPStæki and these are the results
Hmmm nema við Áki lögðum audda af stað svona 15 mín seinna, smá töf á okkur og vorum audda komin niður svona 15 min á undan þessum gaurum :) Samt veit ekki alveg hvað er til í þessu sko, 6000 kalóríur?!, ég veit allavegna að ég losnaði ekki við gramm í þessari ferð. Eða stóð mig allavegna vel við að bæta þeim á mig á leiðinni heim og niðursokkin í sófann daginn eftir og það eina sem ég meikaði var að klára nestið mitt (lesa nammið) sem ég borðaði ekki í ferðinni.

Departure; 05:50 - Return; 16:50 - 17:00

Moving time; 6:56 - Stopped time; 4:06
Total Length; 25,2 Km - Total time; 11:04

Speed
Moving average 3,6 Km klst (Overall averge 2,3 Km klst)

Burn; 6040cal.

Tack och hej leverpastej ;)

3 Ummæli:

  • Hej eeelska að fara inn á síðuna þína núna! alltaf eitthvað nýtt... þú stendur þig vinkona.. svo sjáumst við eeeftir rúmar þrjáár vikur! jeeeiii

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 7. júní 2005 kl. 16:43  

  • Glæsilegur árangur á hnjúknum! Heyrðu hér kemur eitt húsráð frá húsfreyjunni í London: Þar sem ég er ekki með þvottavél heima þá fer í local þvottahúsið, skelli í vélina og hleyp svo einn hring í kringum Regent Park. Þetta er mjög hvetjandi í hlaupunum af því ég má ekki vera lengur en 30 mín svo að þvottnum verði ekki stolið. Haltu nú áfram fjallkonan fríð

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 7. júní 2005 kl. 22:06  

  • þið eruð bara snilldin ein :) hugsa í lausnum er greinilega lausnin, mætti halda að þið væruð iðjuþjálfara svei mér þá..... mín lausn er að láta í vélina á morgnana ef ég vakna nægilega snemma og láta Gest taka úr henni ef hann man það. Nú annars fer þá bara þvotturinn annan hring um kvöldið ef svo heppilega vildi til að mar sé heima :)
    kveðja
    hjallakerlan

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 8. júní 2005 kl. 16:49  

Skrifa ummæli



<< Heim