Millusinn

miðvikudagur, mars 02, 2005

Jákvæð áfram ég fer!!!!

Ussss er alveg að missa mig í jákvæðni og kvennabaráttuanda, hihi. Var að lesa blogg hjá kvennsu einni þar sem hún auglýsti eftir uppskrift af ofurkonunni. Svei svei setti hug minn allan á flug. Hvað er málið með þessar endalausu væntingar og ofurkröfur sem við erum að gera til okkar. Ég auglýsi hér með eftir uppskrift hvað við ofurkonurnar eigum að gera til þess að vera ánægðar með okkur og það sem við gerum!!! ó mæ mar er alltaf að ætla sér meir og meir (eða minna og minna utan um sig) en what the .... hvar endar þetta. T.d. í dag var ég að takast á við smá verkefni í vinnunni og er búin að vera með hausinn á fullu í neikvæðninni um að þetta mundi nú ekki ganga nógu vel hjá mér og ég væri of þreytt, of óskipulögð, ekki nógu klár, skemmtileg og allt þetta. En audda, núna þegar ég er búin þá gekk þetta audda brilljant og ég var ótrúlega dugleg, skipulögð, skemmtileg og klár. Í staðinn fyrir að eyða allri orkunni minni í dag í að vera neikvæð og ímynda mér allt á versta veg þá hafði ég getað sleppt því og átt miklu betri dag fyrir vikið án neikvæðni og bara notið þess að vera að fara að takast á við skemmtilegt verkefni sem ég veit alveg innst inni að ég er að höndla flott. Skora hér með á ykkur dúllurnar mínar að senda mér uppskrift af því hvernig mar á að læra að vera solldið sáttur við sig og hætta þessu endalausa meir og meir kröfubulli. Ég ætla allavegna að halda áfram að vera ótrúlega dugleg og ánægð með mig í dag. Yfir og út

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim