Millusinn

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

gamansaman

hellú hellú, Datt þessi snilldar hugmynd í hug. Nebblega oft á daginn og um helgar þá langar mig ótrúlega að gera eikkað skemmtilegt en hausinn er ekki að nenna að hugsa þannig að mér dettur ekkert skemmtilegt í hug. Endar eiginlega alltaf á því sama, leigja videó eða hanga á Háteig, ekki það að það sé leiðinlegt, þið eruð audda perlur, en væri gaman að fá smá fjölbreytni stundum sko. En allavegna eða eníhá eins og mútta hefði sagt þá ætla ég að nota mikilvægi iðju hæfileika mína og búa til snilldar lista hér yfir allskonar hluti sem hægt er að gera saman, svona gamansamanlisti. er þetta ekki ótrúlega snjöll hugmynd. Þannig að nú crew, verður alltaf mesta stuðið hjá okkur ;)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim