Millusinn

sunnudagur, febrúar 20, 2005

Sunnudagsmorgun

Sunnudagsmorgun og sólin hún situr við borðið svo yndisleg.
Alltaf jafn gaman að vakna á sunnudagsmorgni og hlusta á Jón elskuna Ólafs. Stilli allt í rússandi botn og æri nágrannana með fögrum Millusöng. Góð helgi búin og sona. Við stelpurnar horfðum á ruglað Idol á föstudaginn, eða reyndum allavegna á milli þess sem við tróðum í okkur föstudagssukki. Einföld uppskrift af góðu kvöldi hjá okkur keddlingunum -Hám hám já ég skil ekki við hám hám gerum þetta alltaf smjatt smjatt borðum þangað til við erum alveg dedd (teygir lúkuna í góða hrúgu af súkkulaði og hellir meira Maxara í glasið) við verðum að fara hám hám, slurk slurk að fara að hætta þessu. Jámm við förum allavegna út að labba á morgun!!! Þegar við erum búnar að ákveða það ótrúlega sáttar höldum við áfram að háma endalaust í okkur alveg lausar við allt samviskubit. En í hámuþykkunni daginn eftir er hausinn okkar klúri sem var með lygaramerki allan tímann löngu búin að gleyma göngunni góðu...En mar verður bara að gera eins og Stínan mín, bíða eftir að næsta duglega skorpa kemur og taki sig vel á þá í einhvern tíma! Talandi um skorpur, húsmóðirin mikla bakaði bananabrauð í gær, ótrúlega gott og er búin að bjóða stelpunum í pönnsur (með lyftidufti og heilhveiti ;) og homemade brauð. Uss ég fyllist stolti af öllum þessum dugnaði og er bæði búin að hringja í mömmu og ömmu og segja þeim hvað ég sé ótrúlega lagin við þetta.
Konudagurinn í dag, er að spá í að gleðja mig ótrúlega mikið í dag, ætla bara að vera góð við mig, kyssa mig og knúsa, eða eins og Stella mega gella hefði sagt....jiii en bjútifúl allir ótrúlega glaðir. Jæja elskurnar mínar , gott að vera komin á skjáinn aftur. Njótið konudagsins og ef ykkur leiðist eruði velkomin í pönnsur til mín. koss og knús

1 Ummæli:

  • Hæ sæta mín
    Vildi að ég gæti komið til þín í pönnsur og bananabrauð. skæl skæl, fékk reyndar vöfflur og graflax, en hefði gjarnan vilja kíkja til þín. Gleðilega konudag og njóttu dagsins
    kossar og Knús
    Dagný

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 20. febrúar 2005 kl. 17:16  

Skrifa ummæli



<< Heim