jólin koma vííííí
well well, ég er greinilega ekki að standa mig sem bloggari. Úff þar svo mikið annað að gera mar, allt að gerast hjá mér þessa dagana og ekkert smá gaman. Mín er bara endalaust á stóra bleika skýinu hátt hátt sko, ljúft líf það sko ;) Pabbi minn mesta dúllan kom og hjálpaði mér með íbúðina, þannig nú er hún orðin mannahæf (á Milluskala sko) og get ekki ekki beðið eftir að flytja inn, víííííííí. Ég er svo spennt að ég get ekki einbeitt mér að jólunum, þau næstum bara gleymast í ár sko. Venjulega er ég á miljón í öllum búðum allan lausan tíma, skrifa jólakort og stressa mig gegt. En núna vona ég að jólin komi þótt ég sé ekkert að farast úr stressi og skítt hvort fólkið fái jólakortin milli jóla og nýárs. Þá bara meiri gleði eftir gleðina ;) Er allavegna að fara í jólaboð núna, byrjar dæmið. Endalaust át og tjatt við familíuna sem er bara fínt. Ætla að shæna mig og sjáumst dúllur

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim