Millusinn

laugardagur, nóvember 27, 2004

Long tæm nó síííí

allo allo........ hvað er málið með þessa þreytu þessa dagana.....kom heim eikkað um 6 eftir útrás í körfunni. ákvað að leggjast aðeins upp í sófa hjá Begga mínum...en hvað? skemmtidagskrá sjónvarpsins svæfði stelpuna og ránkaði ég ekki við mér fyrr en rétt fyrir miðnætti. Audda verulega úthvíld og ekki til í að fara að sofa. Er búin að liggja í rúminu og lesa og lesa og bíða eftir því að sofna aftur. EN Millan er greinilega bara tilbúin í laugardaginn því nú er klukkan hálf fimm og þrátt fyrir kamillute, grounding og allskonar svefnörðugleikaúrræði þá tekst mér ekki að fara að sofa. Svo er ekki eins o mar nenni að gera eikkað af viti eins og að taka til svona um miðja nótt. Er að vísu búin að skrifa óskalista fyrir jólin 2004 og koma honum vel fyrir á ísskápnum hjá familíunni, en er núna bara að bíða eftir að bréfalúgan upp gin sitt glenni og gott verði að fá sitt Morgunblað ;) Var að spá í hvort ég ætti að skella mér í diskógallan, smella augnskugga á lokin og finna Áka minn dead á einhverjum bar, en ákvað að hann væri komin með alltof gott forskot.
Ég var á sjálfsvarnarnámskeiði ídag þannig nú geng ég og gengið mitt óhult um götur bæjarins. Ég kann að losa mig úr öllum mögulegum hálsgripum og láta árásarmanninum bregða án þess að sparka í punginn á honum, jiiiiihaaaahoootasiiiiikua

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim