sjokk!!!
ó mæ ég er í sjokki. Missti mig aðeins að skoða annarra manna blogg og jæks það er fullt af viðbjóði þarna inni. juahg þú veist ég er bara kjaftstopp, það er til allskonar viðbjóður og hellingur af rugli. Ekki það að lífið mitt sé einhver falleg skáldsaga en ó mæ, ekki vill ég að systir mín eða aðrir krakkar séu að lesa allt þetta bull. usss ég er með gæsahúð. Ein alveg í realitytékki hérna greinilega...á bara ekki til orð. það er fullt af fólk þarna sem líður greinilega hell og er að koma líðan sinni á blað sem er ekkert nema gottef það er gert á réttum vettvangi og efast um að þetta sé rétti staðurinn og að það hafi góð áhrif á aðra, hvað þá varnarlausa greyið litlu krakkana sem kanski eru í einhverju messi sjálf og finna svo þessar sikk pælingar og hugmyndir sem annað fólk er að gefa á netinu. Sá t.d. nokkrar síður þar sem stelpur sem átröskun voru að skrifa tips og hugmyndir til annarra krakka.......ég bara veit ekki einu sinni hvað skal segja, mín er svo græn að ég var ekki að vita að þetta væri svona rosalegt....en hvað er þá hægt að gera????? Veit um nokkrar síður sem hefur verið lokað, held að mar verði að vera duglegri að láta vita þegar mar dettur inn á svona síður og láta loka þeim (trúi ekki öðru en að netumsjónarmenn taki solleis vel). ussssss usssss best að skríða aftur inn í þægilega sæta græna heiminn minn

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim