Millusinn

fimmtudagur, mars 03, 2005

Hann kemur á hvíta hestinum!!!

Hellú hjartans hálsar. Var að koma úr bíó, dró bróðir minn og þýsku drottninguna með á closer. Bróðir minn uppgötvaði í salnum að hann var 1 af 3 karlmönnum, hehehe damn þar fór lygin um að þetta væri ekki stelpumynd, bara svona fyndið drama eikkað... veit ekki alveg með þessa mynd sko. Get allavegna sagt að jákvæðnin sem var alveg að gera sig í gær, hún er dead! ó mæ ekki hleypa einhleypum konum á þessa mynd! Mar hefur nú stundum efast um framtíðarhorfur með karl, barn, hús, bíl, hund og hamingju EN ussss þetta var alveg til að toppa þessar pælingar. Eins og þið heyrið þá var þetta nett þunglyndismynd og plíííís ekki láta ykkur detta í hug að skella henni í tækið á lónlí sunnudegi með þynnku í hausnum og Maxara og popp í hendi. Mun ekki bjarga stemmingunni. Set þessa myd í G'ið (gleymskuskúffuna) og ætla að halda áfram að láta mig dreyma mig Herra réttan!! Nætí nætí

2 Ummæli:

  • Já sko þessi mynd er alver rosaleg...fjallar beisikklí um fólk sem skiptir um skoðun á því hvern það elskar eins oft og við skiptum um sokka......framhjáhöld eru einnig jafn tíð auk ýmisskona makaskipta og samninga um fyrirgefningar....vííírrd. En það jákvæða er að mitt líf virðist bara ainfalt og gott eftir að hafa séð þessa mynd ;)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 5. mars 2005 kl. 21:18  

  • Vei get loksins kommentað.. eftir að hafa fengið góð komment frá síðueiganda sem slíkum um hvernig slík og þvílík komment eru sett fram.. takk síðueigandi.. Er enn á bleiku skýi eftir myndina sem við sáum í dag... (hitch).. bara horfa á hana og Notebook til skiptis.. og svo bridget og eikkað... ljúúúft... svoleiðis er lífið.. í alvöru!! í alvöru.. nei er ekki að spauga.. það er soleiðis..;-)
    en var að fatta upp á nýju nafni á þig.. Miljana.. hefur þú heyrt það.. passar svo fínt.. Milla og Kristjana.. (hmm kannski gamall djókur) hljómar rússneskt..hehe.. ok meira orðin ritgerð en komment.. fékk engar leiðbeiningar um ritgerðir (bara komment..) þannig að.. búið

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 5. mars 2005 kl. 22:56  

Skrifa ummæli



<< Heim