Millusinn

mánudagur, mars 07, 2005

Blússandi vorfílingur

X-treme Makeover 2Day, við erum að tala, the New Me. Kannski best að finna nýtt Nikk líka og góð ábending vinkona, kanski það verði hin rússneska Miljana. aaahhh Dobre! Við erum að tala um að ég fór í pilsi í vinnuna í dag!!!! Veit ekki alveg hvort allir eru að átta sig á staðreyndum, en þetta eru hlutir sem gerast jafn sjaldan og þið farið í Pardusa búningnum sem þið dimmeteruð í í vinnuna.....sem sagt pretty sjaldan bara. Eða bara aldrei! En ég vaknaði svona ótrúlega spræk og ánægð með lífið í morgun og ákvað að núna væri komin tími á að hleypa kvinnuni í mér út. Mér tókst að þrýsta mér í nælonið og fela svo rúllupylsuna með nýkeypta London pilsinu mínu, ó mæ og var nokkuð sátt við mig! Þannig látið ykkur ekki bregða næstu daga, núna verður keddla bara á útopnu! Get bara ekki beðið núna eftir að vorið komi, sé mig alveg í anda í bleiku pilsi, að drekka einn Kalla með krúinu mínu á Strikinu í Köben!!!! Cant wait!

2 Ummæli:

  • Hæ hæ Miljana mín

    Líst vel á þig, pils eða ekki, ert alltaf jafn glæsileg :D En hefði gjarnan vilja sjá það engu að síður. Hlakka bara til í sumar í Köben á strikinu allar í bleikum pilsum..... OT PINKIES .... JEI
    kv. Dagný

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 8. mars 2005 kl. 21:05  

  • Miljana Snilljana!
    Ég vissi að þú gætir þetta ég er svo stolt af þér pilsaskvísana mín. Þú hefur örugglega verið fínasta frúin í Kópavoginum og þá víðar væri leitað. H&M klikkar aldrei;)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 9. mars 2005 kl. 11:04  

Skrifa ummæli



<< Heim