Millusinn

laugardagur, nóvember 13, 2004

Klippikonan klára

Jei klipping í dag. Úff alveg komin tími á að losna við hjálminn sem ég var komin með á hausinn. Þetta var orðið svona eins og rússnesk loðhúfa, þannig mikil gleði að setjast í stólinn hjá kellu. Klippikonan snjalla gerir bara "klippi klippi klipp" "greiði greið" "setja drullu á hárið" og Millan er orðin svo obboslega fín og ánægð aftur. Ákvað í gleði minni að rétt kíkja í mollið og skoða skó. Hmmm endaði á að kaupa skó, buxur, belti, bol og peysu. Úff það er stór hættulegt að sleppa mér lausri í þessum búðum, ég bara missi mig og það bara alveg óvart. Held ég missi bara svona raunveruleikatengsl og vakna svo allt í einu (sveitt og fína hárið allt í klessu eftir að hafa klætt mig úr og í, úr og í allskonar peysur) upp úr dáinu með nokkra poka í hendinni og man nánast ekki hvernig þetta gerðist og hvernig allir þessir pokar sluppu inn í hendina á mér. Venjuleg á ég ótrúlega erfitt með að ákveða einföldustu hluti en í undraheimi Smáralindar þar bara gerast hlutirnir shvisss svona hratt. Núna bíður mín bara spennt eftir jólasölunum..ójá þar er sko hægt að missa sig...alltaf gaman að versla og spreða. Verð samt að reyna að hafa hemil á mér...flutningur inn í fullorðinsheiminn nálgast hratt og nánar tiltekið bara 19 dagar í stefnu!!!!!!!!!!!!!! víííííííí þá get ég sko boðið ykkur að pissa í mínu klósetti.

Fór líka og heimsótti uppáhaldsfrænku mína í morgun, hún er nú mesta dúllan. Hún hefur alveg ótrúlega margt að segja manni og bullar og bullar og svo leikur hún alla söguna fyrir mann líka, engin smá snillingur þar á ferð.

Jæja dúllurnar mínar, smá öppdeit, c ja sún, kossar og knús

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim