Keep you informed-það er enn snjór
Finn fyrir verulegum hegðunarbreytingum þessa dagana. Veit ekki hvort þetta teljast frávik en þetta eru allavegna frávik frá minni hegðun. Kom heim af fundi í dag og fór að strauja!! Byrjaði á því að strauja trefil sem ég var að þvo. Svona eins og þegar mar er að læra að prjóna þá byrja margir á því að prjóna treffla (tala af reynslu, gerði heiðarlega tilraun til að læra að prjóna í sveitinni. Átti að verða gullfallegir lopasokkar en endaði sem kragi á Begga frænda). Er allavegna búin að nota nýja fína straubrettið sem amma gaf mér í jólagjöf og strauja einn trefil og einn bol! Geri aðrir betur.
Er búin að finna mér lövlí íbúð, með útsýni, í blokkinni við hliðiná þar sem Beggi og Herborg eru að fara flytja. Veit ekki hvort ég stenst greiðslumat eða hef efni á að borga af henni. En kemst aldrei af því ef ég prófa ekki. Þannig mission morgundagsins er að fara í greiðslumat og tala við fasteignasalann. Brrr fyllist að vísu massa ótta, fasteignasalar eru ekki mín sterka hlið...veit ekki en er ekki að treysta þessu fólki og er fyrirfram búin að dæma heila stétt. Týpískt ef ég næði mér svo í fasteignasala.. :D
Við Sonja kláruðum aðra seríu í gær af Greys, MY GOD, hún endaði rosalega! Loksins geta Stínan og lillan komið inn í maraþonin með okkur, því nú hefst 3ja sería.
Við Sonja eru orðnir algjörir Grey´s nördar og miðum líf okkar og annarra út frá seríunni og erum farnar að tala í Grey´s frösum. Bara gaman, finnst við svo ótrúlega fyndnar.
Ætlaði að setja skápinn saman sem ég keypti í IKEA en komst að því að ég tók með mér vitlausan lit heim...hmmm fylgir víst svona sjálfsafgreiðslu. Og það versta að ég get ekki kennt neinum nema mér um þetta :/ ;) Þori samt varla að fara í Ikea til þess að skipta þessu. Ég enda alltaf á að kaupa eitthvað meira en ég ætlaði. Held ég hafi aldrei farið þangað inn án þess að koma út með kerti, ramma eða eitthvað annað ótrúlega sniðugt sem var svo ódýrt að það var næstum því gefins. Verð bara að mana mig almenninlega upp í þetta áður en ég fer inn. Ekki kaupa, ekki kaupa.
Eins og útsölur eru ótrúlega leiðinlegar þá fórum við Sonja á smá rölt í dag. Fann mér peysu sem mér vantar ekki neitt en hún kostaði bara 1.107 kr þannig ég var að græða ekkert smá á henni.
Þrátt fyrir massa snjókomu var ekki hægt að opna í fjallinu í dag, er alvarlega farin að spá í að skella mér norður um helgina. Ég er nefnilega svona doer eins og Meredith, ef ég fæ einhverja flugu í hausinn þá finnst mér ég verða að framkvæma.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim