Gleðilegt nýtt ár og TAKK fyrir gamla krúttin mín
Þetta er furðulegt. Stundum hugsa ég heilu dagana í bloggi, er alltaf að detta eitthvað sniðugt í hug til að blogga. Svo þegar ég kem heim eða sest fyrir framan tölvuna þá er það bara farið, bloggandinn er bara floginn burtu. Er eiginlega farin að kalla þetta bloggröddina mína og finnst hún oftast ótrúlega orðheppin, sniðug, fyndin og algjörlega þess virði að deila með ykkur út í heimi...en skil þetta ekki og er samt búin að pæla ótrúlega mikið í þessu:
1. Kannski man ég bara ekki fyrir horn
2. Kannski er þetta bara ein af öllum mínum röddum í hausnum sem ég er búin að vera að reyna að þagga niður í í mörg mörg ár og ætti bara að vera ótrúlega hress með þetta
3. Kannski nenni ég ekki að blogga
4. Kannski langar mig ekki að blogga
5. Kannski þori ég ekki að blogga
6. Kannski hugsa ég svo ótrúlega mikið að það er ekki til í dæminu að muna þetta allt
7. Kannski er þetta mín leið til að finna alltaf fyndnu punktana í tilverunni (en man það svo ekki til að segja öðrum)
8. Kannski þarf ég bara ekkert að segja ykkur þetta, kannski er bara nóg að ég skemmti mér, ein með mér. Simple is better
9. Kannski rugla ég bara og rugla
10. Kannski veist þú betur?
Kannski er kannski ekki með tveimur N´um?

1 Ummæli:
Hahahahahahhahaha já einmitt vinkona :)
Höfundur
Nafnlaus, Þann
11. janúar 2007 kl. 19:11
Skrifa ummæli
<< Heim