Millusinn

föstudagur, janúar 12, 2007

Það er enn snjór!

Bara að koma helgi...að vísu ekki mikill dagamunur hjá minni þessa dagana en ég get miðað við að Sonja er allavegna í fríi um helgar. Gott Maraþon með góðum vinum bíður okkar í kvöld og svo er ég að vona að þeir opni í fjallinu á morgun. Á blafjoll.is stendur að ekki sé opið en upplýsingar verði settar inn í dag eða kvöld. Kommon það getur varla snjóað mikið meira á höfuðborgarsvæðinu, hljóta að opna. Annars er dásamlegt færi fyrir norðan. Jóninn sveittur að troða púður fyrir norðar, get ekki beðið eftir að fara þangað eftir mánuð. Matur hjá Sonju á morgun og svo eru 2 innflutningspartý í boði. Annað býður upp á gift pör en hitt virðist stefna í gott pylsupartý. Kíki kannski í parapartýið svona til að sýna hvað ég er kurteis stelpa en hmmm hef sjaldan neitað góðu pylsupartýi. Þarf að tékka betur á þessu.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim