10 köttbullar med lingon
Vá tíminn flýgur...góður dagur. Skil eiginlega ekki hvernig ég á að finna mér tíma til þess að fara vinna og vá hvað ef ég hefði nú ætlað að vera í skóla líka.
Nýjasta öppdeit á lífi mínu, ég er búin að skrá mig úr skólanum og er að bíða eftir að byrja í nýrri mjög spennandi vinnu. Ég er sem sagt ekki búin að vera í skóla né vinnu síðan 15. des og mitt líf er bara bissý. Skemmtilegt hvað það er óendanlega mikið hægt að gera og samt næ ég ekki að gera helminginn af því sem mig langar að gera. Vaknaði þegar Toný vinkona hringdi í morgun. Hún er svo drífandi og hvetjandi að ég fyllist eldmóð að takast á við daginn. Byrjaði á því að skreppa á fund. Nei byrjaði á því að hlaupa út. Af einhverri furðulegri ástæðu get ég aldrei labbað eins og annað fólk, þarf alltaf að vera hlaupandi um. Held þetta sé frá því þegar amma dró okkur Sigurrós á harðahlaupum á eftir sér í búðum þegar við vorum yngri og við tístandi úr hlátri á eftir henni að máta föt í Dalakofanum. well well önnur saga....allavegna hljóp út og bókstafleag flaug á hausinn hérna fyrir utan...spáði fyrst í því hvort ég ætti að verða ógiðslega pirruð en ákvað þegar ég lá þarna með sko snjó alveg inn á brók að þetta væri mjög fyndið móment. Hjúkk engin að horfa, dustaði af mér og skellti mér á fund. Fór og borgaði stöðumælasektir. JÆKS 4.500 kall fyrir 2 sektir (eins gott að vera andleag tengdur þegar mar tekst á við svona verkefni mar). Sjitt spurning hvort það sé farið að verða ódýrara að kaupa sér íbúð í bænum í staðinn fyrir að skilja Gráa krúttið alltaf eftir í bænum og enda með stöðumælasekt. Sjæse ekki skrýtið að borgin getur verið að byggja rándýrt tónlistarhús. Fór í Ikea og keypti mér bókaskáp, hlakka ekkert smá til að raða bókunum mínum í fína nýja skápinn minn. Að sjálfsögðu fékk ég mér 10 köttbullar med potatis och lingonsås...jammmi
Fór og heimsótti lillu frænku mína sem alls ekkert er neitt lítil lengur...haha ekki langt í að við getum farið á rúntinn og keypt okkur trúðaís og farið í bíó á allar skemmtilegu Disney myndirnar.
Fór í bíó með Þór á Little miss sunshine, sæt fyndin mynd, mæli alveg með henni í þynnku á sunnudegi. Enduðum svo á kaffihúsi og áfram hélt að snjóa. Like it a lot...fjallið hlýtur að vera orðið dásamlegt.
Jæja ætla reyna sofna, gengur ekki svo vel þessa dagana að sofna á skikkanlegum tíma, er alveg búin að snúa sólarhringum við. En það er annaðhvort lesa sofa eða leggjast á gólfið og skrúfa saman Ikea.
Heyrru já og á morgun bíður okkar annað dásamlegt Maraþon með nýju vinum okkar, get ekki beðið...kannski ég lumi einni góðri sögu í Sonju (þú verður bara að hönndla þetta vinkona, þetta verður daglegur reminder:)
Næti næti og sjáumst í fjallinu um helgina

1 Ummæli:
fátt jafn hressandi og snjór í brók snemma dags :)
Höfundur
Nafnlaus, Þann
12. janúar 2007 kl. 13:34
Skrifa ummæli
<< Heim