Millusinn

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Jag ser det snöar, det är så roligt , hurra!

Gott að allt er eins og það á að vera...blogga ekki í marga daga en tek svo góða syrpu.
Keypti undanrennu í gær. Vá þetta er eins og að luma á gulli, mun betra en að eiga góða kampavín í ísskápnum. Æðislegt að koma fram úr opna ísskápinn og eiga mjólk. Jammi cheerios og mjólk í morgunmat...makes my day.
Stína mín er að koma suður í dag með nýju litlu frænku okkar...Jiii hvað það verður gaman að sjá hana, dúllan er ekki einu sinni orðin 1 mánaðar.
Við Skoon erum búnar að eignast nýji vini. Dr. Burke, Dr. Shepherd og keddlingin hans, Meredith, Izzy, Cristina, Dr. O´Malley og félagar. Erum gjörsamlega húkkt á Grey´s Anatomy þessa dagana. Ég er sko ekki vön að festast í einhverjum seríum en vá get ekki beðið eftir að halda áfram að horfa. Erum búnar að taka 3 góð kvöld í þetta og toppuðum það á sunnudaginn með Maraþoni frá 14 til 23 og ekki einu sinni pissupásu á milli. Besti þynnkudagur í Milluminni.

Snjóaði í nótt, er eiginlega að verða dálltið bjartsýn á að þeir opni í fjallinu um helgina. Hver er game?

3 Ummæli:

  • hei kúl, ég virðist eiga sömu félaga og þið :) ný búin að uppgötva þessa snilldarþætti sem Grey´s anatomy er. Gleðilegt árið og takk fyrir það gamla. Sjáumst vonandi fljótlega.
    kv. Guðbjörg

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 10. janúar 2007 kl. 23:22  

  • enn er ég að klikka á þessum leyniorðum, damn var búin að kommenta fullt en það kom ekki inn. Þessi komment fjölluðu semsagt um hvað þú ert mikill snillingur :):), Friendsmaraþon sem ég tók einusinni þátt í og hversu mikið must það er fyrir alla að lesa "gamalt og gott" linkinn þinn öðru hvoru, mikið rosalega áttu fyndnar vinkonur, shit bara

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 11. janúar 2007 kl. 12:16  

  • Hlakka rosalega til að hitta gamla crewið á spítalanum á föstudaginn...kannski þarf að framkvæma flókna skurðaðgerð og fjarlægja the frontal lobe til að pulmonary edema komi ekki upp aftur......og kannski kyssir Dr. Shepherd þú veist hverja!

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 11. janúar 2007 kl. 19:20  

Skrifa ummæli



<< Heim