Er Guð til? Hver er það? Hvað er það? Til hvers?
Er Guð kona? Fór í kvennamessu með mömmsu í dag og þar var talað um Guð sem konu. Hef oft heyrt fólk tala um þetta, velta því fyrir sér og rökræða. Hvað er Guð, hver er hann, er hann karl eða kona, svartur eða hvítur, maður með skegg eða andleg vera. Alltaf hef ég heyrt talað um Guð sem hann (þó það sé verið að rökræða hvort hann sé kona). Í messunni var talað um Guð sem konu, þegar beðið var til Guðs var sagt -Kæra Guð, Elsku Guð mín og hún Guð. Fannst þetta dálltið merkilegt og já eiginlega gaman að heyra.
Mér finnst gaman að pæla í Guði og spá í hver og hvað mér finnst Guð vera. Útskýrt í mjög stuttu máli þá er Guð fyrir mér hvorki karl né kona heldur nærandi æðri máttur sem er til í öllu og öllum. Málfræði kann ég ekki og vona að Guð sé ekki hægt að skilgreina málfræðilega sem hann eða hana þar sem hver og einn verður að skilgreina Guð á sinn hátt.
Góða nótt, kveðja heimspekingurinn í djúpum pælingum svona rétt fyrir jól :)

2 Ummæli:
Sammála þér millan mín, Guð er hvorki karl né kona í mínum huga. Guð er því æðri að vera kyngreindur.
kveðja
Guðbjörg verðandi prestmaddama
Höfundur
Nafnlaus, Þann
13. nóvember 2006 kl. 23:14
Flott komment Guðbjörg, gott innlegg í mínar pælingar "Guð er því æðri að vera kyngreindur"
Knús
Höfundur
Milla, Þann
13. nóvember 2006 kl. 23:57
Skrifa ummæli
<< Heim