Millusinn

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Smáfólkið



Fór í gær á mjög skemmtilega nýsköpunar hátíð fyrir börn. Það var verið að veita verðlaun fyrir bestu verkefnin og svaka fínt fólk mætt á staðinn, forsetinn, borgarstjóri og menntamálaráðherra. Flott hjá þeim að sýna þessu áhuga. Menntamálaráðherra sagði frá því að þetta verkefni heyrði nú undir hennar ráðuneyti og veitt yrði fjármagn í það árlega, flott framtak. Einnig flott hvað það voru mörg fyrirtæki sem stóðu á bakvið og styrktu þetta verkefni. Audda flott auglýsing fyrir þessa aðila, pranga sínum auglýsingum upp á börnin, en mér er eiginlega sama í svona tilfellum þar sem verið er að styrkja gott málefni. Þetta nýsköpunar verkefni er orðið svaka stórt dæmi í grunnskólunum og það bárust 5000 tillögur í keppnina, en þegar keppnin var fyrst haldin voru eitthvað örfáar tillögur, man ekki alveg en eitthvað kringum 50 minnir mig, ekkert smá flott hvað þetta hefur vaxið. Er það örugglega flottum kennurum að þakka sem styðja og hvetja krakkana í að framfylgja hugmyndum sínum. Krakkar eru nebblega svo ótrúlega flottir, þau láta ekki álit annarra, gamlan vana eða annað stoppa sig til að hugsa frjótt og þora að prófa nýja hluti. Þau þora að fara út fyrir kassann, þar sem við, sem erum eldri, oft erum föst og þorum ekki að hreyfa okkur út fyrir.
Veitt voru verðlaun fyrir 4 flokka og náði litli frændi minn sér í FYRSTU verðlaun í einum af flokkunum, svo var tekið viðtal við hann í sjónvarpinum og allt, óggislega frægur skiluru! Til hamingju elskan þú ert ekkert smá duglegur og flottur! Stolt af þér!!!!
Svo var svo gaman að sjá hvað þetta var mikil fjölskyldu hátíð, þarna var öll famílían komin saman, foreldrar, systkini, afar og ömmur, frænkur og frændur, allir að hvetja sitt fólk. Eitt fannst mér samt ótrúlega skrýtið, sem eiginlega segir til hvað fullorðna fólkið er fast í sínum kassa og þorir ekki að fara út fyrir neinar hefðir og óskrifaðar reglur. Þetta var fjölskylduhátíð og fullt af krökkum á öllum aldri en athöfninni var ekki beint til barnanna. Það var eins og henni væri beint til fullorðna fólksins og þá oft aðallega til "fína fólksins" á staðnum, endalaust verið að hæstvirta þau. Nokkrir þarna sem héldu ræðu og þær voru allar á fullorðins máli, sem ég varla skildi og drepleiðinlegar þannig að, allavegna ég og krakkarnir, voru löngu dottin út og farin að iða í sætunum og telja ljósakrónurnar í loftinu. Skil ekki af hverju þetta má ekki vera hátíð barnanna, þar sem skrítla og skrípó mæta á staðinn og talað er á máli barnanna, þau heiðruð og hæstvirtuð. Kommon þetta er þeirra dagur, ekki forsetans eða borgarstjórans eða foreldranna. Er að spá í að hætta að röfla ein út í horni og benda hæstvirtu skipuleggjendum á þetta. Leiðinlegt því þetta var mjög flott hátíð, að eiginlega öllu öðru leiti, með kökum, djús og alles.
En nóg um það :) Til hamingju með frábæran árangur frændi og allir hinir krakkarnir sem stóður sig svona vel. Vona að þið haldið áfram að hugsa út fyrir kassann og framkvæmið hugmyndir ykkar og drauma. Over and out

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim