Millusinn

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Gegn helv... ofsaakstri



http://www.gp.se/gp/jsp/Crosslink.jsp?d=10#

http://www.gp.se/gp/jsp/Crosslink.jsp?d=113&a=306067

Mæli sterklega með því að þið farið inn á báða linkana og tékkið á þessu, ef þetta er ekki reminder um lífið þá veit ég ekki hvað. Linkurinn hér efstur þá skrollið þið niður á eitthvað sem heitir "bildspel" og þá kemur videó um Matti.
Hvað er samt málið. Hann er 28 ára gamall (þykist vera 27 ára í greininni en iss kommon hann á afmeæli í desember, einn að reyna...) og lenti í umferðarslysi í fyrra þar sem mótórhjól keyrði á hann og vin hans, sem einnig er mágur hans. Vinur hans dó samstundis ásamt farþeganum á mótórhjólinu. Matti er í hjólastól og er í endurhæfingu varðandi allar athafnir daglegs lífs og þá erum við að tala um að ganga, tala, borða, spila á trommur, ALLT. Gaurinn sem keyrði mótórhjólið slapp best út úr slysinu og þótt ótrúlegt megi virðast þá brotnaði hann bara eitthvað. Ökumaðurinn (ökuníðingurinn) var á 150 km hraða, á mótórhjóli, um hánótt og var að keyra "svarttaxi" (= vinsælt fyrirbæri í Svíðþjóð þar sem gaurar, því miður aðallega útlendingar, keyra ólöglega leigubíla, mikið hefur orðið um nauðganir, ofbeldi, fúsk og ýmislegt ljótt í kringum þessa svarttaxi).
Mar spyr sig!!! Hvað getum við gert til þess að stoppa ofsaakstur og já vá ég tala nú ekki um þessa svarttaxi, sem ég vona að verði ekki algengt fyrirbrigði á Íslandi.
Vona að ég fái einhver svör í náminu mínu og geti nýtt það til framkvæmdar hvernig hægt er að vinna með alla þessar "óæskilegu hegðanir".
Matti þú ert hetjan mín!!!! Hugsum áður en við framkvæmum!!!

1 Ummæli:

  • Hallå bruttan! Kul å se att du oxå har en blogg! Men jag fattar ju ingenting av den...haha...jaja kan kolla på bilderna iallafall! Kolla gärna in min: www.tommytwotimer.com

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 5. nóvember 2006 kl. 17:44  

Skrifa ummæli



<< Heim