Millusinn

þriðjudagur, maí 03, 2005

hvar mun þetta enda!

ó mæ goD! Ætlaði bara að segja ykkur að ég hjólaði í vinnuna í morgun, uss mar þvílíkur dugnaður ;) Planið að gera þetta út vikuna (ekkert smá fegin að það sé frí á fimmtudaginn og svo aftur í næstu viku....held samt ég verði dead by then, úfff svaka brekka mar þanna yfir Bústaðaveginn, lærin öskruðu en ég barðist áfram og hugsaði allan tímann "kúlurass, kúlurass". Mjög hvetjandi aktjullí! Svo er líka bara skemmtileg vika framundan. Á morgun er dinner með iðjupæjum ásamt aðstoðarmanni, frí á fimmtudag, karfa á föstudag og svo habahaba stóri dagurinn á laugardag!!! Erum að fara í brúmm brúmm 4hjólaferð, allar stelpurnar í hámó, svo pottinn, svo grilla, svo drekka fullt af bjór og endalaust gaman.....jei get ekki beðið

5 Ummæli:

  • Hæ sætust :D
    Má ég vera heiðursfélagi í Hámó og koma með ???? Er að koma um helgina ..... knúzzz Dagga beib

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 3. maí 2005 kl. 15:57  

  • Ekki málið Dagný :) Milla þú ert massadugleg mar, varð næstum því að leggjast fyrir þegar ég las bloggið :) varð svo þreytt..... hehehe hlakka geggt til á laugardag. síju Guðbjörg

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 3. maí 2005 kl. 16:57  

  • Takk takk Guðbjörg mín :D Nú er bara að fá leyfi hjá hinum meðlimunum og fá nánari díteils :D

    jeijeie gaman væri nú að sjá ykkur allar :D

    knúzzz Dagga iðjuleysingji :P

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 3. maí 2005 kl. 19:24  

  • Hæbbsí honey, Hvernig væri nú að restin af bekkunum færi að hittast. Hitti Önnu Guðnýu um daginn og hún saknar ykkar líka. Hey ég á fjórhjól! Öfunda ykkur. Mig langar líka í stelpuhjólaferð...kv.Sísý

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 4. maí 2005 kl. 15:24  

  • Er svona hjartalega sammála þér með Bústaðarvegsbrekkuna, hvaðan er hún, má ég spurja? Hún er svo brött að það liggur við að maður detti aftur fyrir sig við að hjóla upp hana. Og svona upp á söpportið þá ætla ég að hjóla í vinnuna þri, mið og fim í næstu viku :)Sjáumst svo bara á lau á fjórhjólunum, Bebba brumm brumm

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 6. maí 2005 kl. 12:49  

Skrifa ummæli



<< Heim