Millusinn

sunnudagur, apríl 17, 2005

mjúkt, loðið og ótrúlega sætt

hey það er svo gaman að fá komment á síðuna, thanks friends ;) ég var heldur ekki búin að pöbblissa að við erum að fara á U2 tónleika í Póllandi í sumar, þetta er náttúrúlega frábær hugmynd hjá Haukinum!!!! svo eftir það er planið að skella sér til Sverige og hitta gamla góða krúið, það er bara ljúft!!!!!!!!!! Can´t wait.

Verð að segja ykkur túlipanarnir mínir fyrir utan eldhúsgluggan eru farnir að springa út og þeir eru ekkert smá flottir, sérstaklega þar sem þeir eru fyrir utan gluggan hjá sæta kaktusinum mínum sem blómstrar á fullu með sætum bleikum blómum.....ohhhh dásamlegt, verð að fara að laga myndavélina svo ég get deilt þessu með ykkur........ótrúlega væmið en það er æði að vakna á morgnanna og líta út og kíkja á túllana mína ;)
samt smá galli í glugganum er líka blómið sem mamma og Slauga systir gáfu mér. Það er svona blóm sem er eins og brúskur, svona sem er gegt gott að káfa á, gegt mjúkt og þannig og og og ég er eiginlega solldið mikið búin að gleyma að vökva greyið, þannig það er orðið smá svona pínu slappt..........verð eiginlega að gera eikkað í þessu áður en fam kemur í heimsókn. Þetta er nebblega svona blóm sem´mér tókst alltaf að kála hjá mömmsu, það er nebblega svo þægilegt að káfa á því, ótrúlega mjúkt og sætt, bara kallar á mann að knúsa sig og svo er það ekki greyið að höndla þrýstingin, hmmmm verð að fara að tríta það rétt.

Hér með bætist allavegna eitt atriði við óskakærastalistann, hann þarf eiginlega að kunna að vökva blóm........óska hér með eftir einum slíkum

góða nótt esskurnar........ og hámingjar -Hlakka til að hitta ykkur á morgun :)

1 Ummæli:

  • hahaha, ertu að knúsa og strjúka blóminum þínu, hahaha :) Þú ert alveg yndisleg, já ég er að koma til landsins á föstudaginn og ég kíki á þig í heimsókn næstu daga á eftir, þá vona ég að blómið þitt verði orðið hresst því nú langar mig að prufa að strjúka því og finna hvað það er mjúk :)
    Hlakka til að sjá þig.

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 18. apríl 2005 kl. 16:24  

Skrifa ummæli



<< Heim