Millusinn

sunnudagur, apríl 17, 2005

Baki bak smaki smak baka lon og don, sagðann langi mangi svangi mangi langi mangi svanga mangaSon

dadaraaa sunnudagru again, bara fyndið hvað tíminn er ótrúlega fljótur að líða, það er bara grín swischhh og tíminn líðinn.....en búið að vera nóg að gera. Árshátíð í vinnunni á föstudaginn og of course var ég búin að troða mér í skemmtinefnd og vorum við svona ótrúlega sátt við hátíðina mar, þetta heppnaðist ekkert smá vel og allir, held ég, þokkalega sáttir. Fyndin skemmtiatriði, góður matur, skemmtilegt fólk og endalaust dansað = Frábær uppskrift af góðri árshátíð.
Þetta var orðið þannig að mar var komin úr skónum til að geta tjúttað almennilega. Held samt ég verði að fara að skrá mig á gömludansanámskeið, er ekki alveg með rétta múvið í þannig stemmingu, er meira bara svona enþá í hopp hopp í skopp fílingnum (fyrir ykkur sem hafa orðið vitni að hinum fræga kanínudansi okkar systkina vita hvað er verið að tala um). kanínudasinn er að vísu oft að gera sig og er ótrúlega fínn dans en hann er ekki alveg að gera sig þegar fólk er meira í svona Geirmundar sveiflunni. En það er sem sagt hér með komið á margra ára planið, ásamt söngnámskeiðinu og mörgu öðru skemmtilegu.

Sætur Sunnudagur... á sunnudögum fæ ég alltaf svona bilaða þörf fyrir að baka, það er bara ekki svo gaman að baka fyrir sjálfa sig. Er að spá í að koma af stað svona hefð fyrir opnu húsi hjá millunni á sunnudögum, þar sem fólk getur droppað í kaffi og ég get fengið útrás fyrir þessa sköpunarþörf mína. Þannig hér með dúllurnar mínar vitið þið hvað ´bíður ykkar á næstu vikum Hlakka til að sjá ykkur ;)

4 Ummæli:

  • Nammi namm kella, það hljómar mjög vel að geta droppað til þín ALLA sunnudaga í bakkelsi ;) mmmmmmmmmmmmm......... En við Stína fína verðum líklegast að segja pass í dag því við erum að ryksuga og laga til...hehehehehehe.....ryksugan á fullu drepur alla dru........
    Aufwiedersehen :)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 17. apríl 2005 kl. 17:48  

  • dullleg deppa :) harkaði af mér og bakaði eina köku þvílík hetja.... sí jú tú morrrrró í hámó :) kveðja hjallakerlan

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 17. apríl 2005 kl. 19:49  

  • hei mills...
    heyrðu.. síða með einhverjum upplýsingum um flug og solleiðis.. http://www.maersk-air.com/da.. en þú þarft ekki annað en hringja ef þig vantar einhvern í kaffi.. ooonly a moment away...

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 17. apríl 2005 kl. 22:06  

  • alltaf velkomin stína mín, jámm ég var búin að skoða þessa síðu en það er ekkert sem hentar okkur obboslega vel, verðum að skoða þetta.......

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 17. apríl 2005 kl. 22:49  

Skrifa ummæli



<< Heim