Millusinn

miðvikudagur, mars 30, 2005

skvísó á ísó

heyrðu heyrðu bissý dagar mar síðan ég dritaði einhverju hérna niður síðast. Ljúfir páskar, svít svít thing, endalaust gott að fá nokkra daga í bara pjúra leti. Stakk af til ísó og átti dásamlega daga í firðinum. Get ekki hugsað mér betri páska, endalaus leti hjá pabba og co. Þar er dekrað við mann hægri vinstri og hef ég ekki þurft að lyfta litla alla helgina. Mar dröslaðist til að búa um rúmið sitt og það var beisikklí it. Fór á ball í Hnífsdal, svona 17 ára flassbakk, hitti fólk sem mar hittir nkl bara þarna einu sinni á ári og ekkert smá gaman. Líka gaman þetta er orðið svona familíthing. Mín er greinilega ekki 17 sjálf lengur heldur eru litlu systkinin og frænkurnar búnar að taka við því hlutverki . Sem er alls ekki leiðinlegt og skemmti ég mér ótrúlega vel með dúllunum mínum. Greinilega eikkað svona Fame gen í okkur, við dönsuðum og dönsuðum og þokkalega áttumm gólfið, að okkur fannst allavegna sko... En bara gaman að djamma með þeim. HÆÆÆÆÆÆÆÆ!!!!!!!!!!! ;)

Kíktum audda á Aldrei fór ég suður, VÁ ekkert smá strórt hrós til þeirra sem plönuðu það. Útihátíðarfílingur nema í besta skítapleisi í heimi. Þetta var masssa flott hátíð sko. Fullt fullt fullt af fólki á öllum aldri í góðu geimi í lopapeysunni með öllara. Cant find words sko... Er bara strax farin að hlakka til næsta árs ekki spurning.
Lítið um snjó á ísó en því meira gert af því að háma páskaegg. ég þvingaði mömmsu til að gefa mér eitt egg og svo gaf pabbi mér eitt þegar ég kom vestur, knús dúllur. Og sem betur fer þá gaf Sonja mér Kindereggkitt fullt af nammi þannig að ég gat hámað það í mig dagana fyrir páska og ótrúlegt en satt...... í fyrsta skipti á ævinni þá opnaði ég ekki húkkuladieggin fyrr en á páskadag, jeui jei fimmu fyrir því sko!
Lenti í einu ótrúlega skemmtilegu, vinkona mín, ´hún Auður og Rúnar voru að skíra á páskadag og við mætum þanna stelpurnar deadþunnar og svo allt í einu þá bara dödödödö....dödödödö...dödödöödöödöödöödödö Brúðarvalsinn!!!!!!!!!! og þessi ótrúlega krúttlega skírn hjá henni Bríet Björgu breyttist í tvöfalda hamingju, brúðkaup og skírn!!! Við stelpurnar audda misstum okkur á aftasta bekk, sátum í geðshræringu og héldumst í hendur!!! OHHHH þetta var ÆÐI og ekki leiðinlegar minnigar sem voru rifjaðar upp í veislunni eftirá, hihi.
´
Eins og þið heyrið búin að hafa það ekkert smá gott!!!!!!!! LJúfa líf, kem svo heim og er boðið í hámó hjá Stínunni, ekkert smá gaman að fá öppdeit frá krúinu, mar var alveg komin með fráhvörf eftir svona marga daga hey já og nýr hámari bættist í klúbbin, velkomin Sandra!

Jei kjei dásamlega bissý dagar framundan, massa mikið skemmtilegt að gerast. Greinilegt að það er farið að vora, orðið bjartara og fólk að springa út úr vetrarmóki. Gamangaman.

1 Ummæli:

  • Neiiiiii smilla mín...ég á nú doldið bátt með að trúa því að þú hafir opnað páskaeggið á páskadag..........neiiiiiiii.........djö...þá er nú síðasta vígið fallið..... ;)

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 2. apríl 2005 kl. 13:31  

Skrifa ummæli



<< Heim