Millusinn

föstudagur, mars 18, 2005

Görlís weekend out of town

JEI JEI JEI við erum að fara í stelpuferð upp í bústað! Er það ekki bara snilldin ein! Þetta er massaskemmtilegt. Við erum búnar að plana gegt, skrifa lista og missa okkur í Bónus, Hagkaup og vínbúðinni. Keyptum heila körfu fulla af jammi jammi allskonar og svo audda erum við með böns af spilum, bók, flíspeysuna, letibuxurnar, sundföt fyrir góða ferð í pottin, naglalakk, andlitsmaska, svona krem til að taka krukkur, svona krem svo við verðum ótrúlega ungar og sætari, að sjálfsögðu slúðurblöð svo við vitum hvaða föt og litir fara okkur miðað við peruvöxt, epli eða banana, já og góða skapið, allt nýjasta slúðrið, strákasögurnar og óléttusögurnar og föt í bæjarferð í kaupfélagið á Borgarnesi, það er bara möst að fara þangað og helst verður mar eiginlega að kaupa sér eikkað þar. Það er bara snilld að fara í kaupfélagið, þú veist, á milli sviðakjamma og súkkulaðisnúða leynast ákkurat díselgallabuxurnar sem þig er búið að langa í for years eða beltið sem þig er búið að dreyma um og allt bara á 3999. Klikkar ekki mar kemur alltaf út ótrúlega sáttur með snilldar kaup í kaupfélaginu. Stína hin fína er svo búin að plana eikkað gott atriði sem verður örugglega bara snilld ef ég þekki mína rétt, ó mæ og svo vona ég að Bebba sé með leynivin og Sonja sé búin að æfa dansspor. ég er búin að fá lánað Bingo (hefur ekki klikkað í þessum ferðum hingað til hihi) og kaupa skemmtilega vinninga (hmmm fáið örugglega að sjá myndir af þeim við tækifæri). Get ekki beðið verð að fara að pakka öllu skemmtilega dótinu mínu og drífa mig til stelpnanna. Svo er það bara road-trip með Bubba félaganum í Skorradalinn. Góða helgi og koss og knús

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim