Föstudagur
Föstudagur! í vinnunni.....þessir dagar fyrir helgi virðast eihvernveginn alltaf enda eins í vinnunni. Ég reyni endalaust að finna einhverjar afsakanir til þess að gera sem allra minnst, alltaf einhver svona ofurleti sem hellist yfir mig og ég bara NENNI ekki að gera neitt. Ég er með snilldarútsýni við gluggan minn og get gleymt mér endalaust að fylgjast frekar með öllu skemmtilegu og góða veðrinu fyrir utan. Það skemmtilega ´(hmm kanski ekki fyrir þau) er að ég sé inn til fólksins í blokkinni á móti en í glugganum mínum er svona speglagler þannig að þau sjá ekki inn til mín. Hehee Jón spæjífílingur að fylgjast með gamla fólkinu á móti. 1 og 1/2 tími eftir í vinnunni og 2 og 1/2 í körfuboltann. Þá byrjar niðurtalninginn....... Jæja best að finna fleiri heimasíður á netinu til að gleyma sér yfir þennan tíma sem eftir er ;) þangað til tjúddilú

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim