Millusinn

laugardagur, maí 14, 2005

Föstudagurinn þrettándi

Föstudagurinn 13! heheh búið að sjúkdómsgreina daginn paraskavedekatriaphobia, 50 kall sá sem getur sagt þetta hratt 5x í röð. Fólk sem er með fóbíu fyrir þessum degi. Fólk sem meikar ekki að fara í vinnuna af ótta og hræðslu við að lenda í einhverju! Í Bandaríkjunum er meira að segja búið að rannsaka að fólk er líklegra til að lenda í slysum og óhöppum þennan dag þar sem það er svo ótrúlega kvíðið að lenda í einhverjum bulli.... hehehe pæliðið í því

Ég er alloavegna búin að eiga dásamlegan dag í dag! við gæsuðum vinkonu okkar, fórum í Bláa Lónið fengum nudd í Lóninu, ekkert smá æðislegt undir berum himni!! Fengum okkur að borða og kíktum svo í bæinn. Sátum þar og kjöftuðum og kjöftuðum en í lokin var mín að vísu aðeins farin að detta út. Var orðið aðeins of flókið að fylgjast með "fólkinu" í kring OG hlusta á stelpurnar ;) Því eins og vanir menn þekkja þá er það engin smá vinna að fylgjast með markaðnum........mar þarf að skanna hann almennilega og pikka út þá sem lúkka vel, svo þarf mar að setja upp lúkkið og bíða eftir eyekontakt. Var að vísu að læra ´nýja vísindalega sannaða daðurtækni ídag, so jú better watch out! ef mar horfir með vinstra auganu í vinstra augað á gaurnum þá er mar að gefa í skyn heita strauma. ó god damn vildi óska að einhver hefði sagt mér þetta fyrr, að þetta væri svona auðvelt mar. Thank god að það er þá búið að leysa málið, er nebblega að verða smá svona þreytt á ástandinu og alveg komin tími á að líta í einhver vinstri augu. yfir og út, sjáumst á kantinum

1 Ummæli:

  • Hæ.. kommon vinkona.. það er ekki 13. maí lengur... for kræíng át lád!

    Höfundur Anonymous Nafnlaus, Þann 26. maí 2005 kl. 20:56  

Skrifa ummæli



<< Heim