Millusinn

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Its raining man hallelúja

Hvað er málið með veðrið??? Mar er lox orðin góðu vanur og búin að venja sig á að mæta í pilsi og hlýrabol í vinnunna. Nei nei þá á að venja mann á kraftgallan aftur og í Michelínfílinginn aftur, jæks. Hmm kanski er verið að hvetja okkur stelpur til að fara að blogga aftur. Mín hefur allavegna ekki nennt að vera inni í tölvunni í þessu snilldarveðri sem er búið að vera, æm tótallí löving it! Það versta er að ég stjórnast gegt af veðrinu og blómstra á sumrin og svo um leið og það verður svona eins og í dag, kallt og, rigning og rok svona typical æslandik þá bara ríkur mar niður í orkuleveli. Talandi um veðrið ótrúlega fyndið hvað við erum mikil veðurþjóð. Þegar Jenný vinkona kom til landsins fannst henni við íslendingar eikkað hálf feimnir og allir á yfirborðstjattinu. Svo þegar ég kem til Sverige og er sítalandi um veðrið er mar bara dissaður sem old lady.

Er að horfa á eikkað dissaramyndband í sjónvarpinu ó mæ sem betur fer virðist anórexíulúkkið vera komið úr tísku og nú þarf JLo að fara að bæta á sig mar, þetta eru alvöru bigMamaasses sem þeytast hraðar en þurrkarinn hjá mömmu. Mar þarf að fara að leggjast í æfingabúðir í þvottahúsinu hjá keddlu. Einhver game??? Ok tek þetta tilbaka þar sem það eru bara þið görlís sem lesið....dont want jú there ;)

Hámó á Hlíðarvegi í gær, kommon stelpur, tillaga á næsta fund. Nafninu verður breytt fyrir veturinn, Millan tekur þessu svo gegt bókstaflega...hömluleysið er gríðarlegt í þessum málum, algjört stjórnleysi í gangi. Það versta er samt að mar er orðin svo vanur þessu að það er ekki vottur af samviskubiti daginn eftir. Viðurkenni hér með stjórnleysið, komin tími á nýja stefnu....hvernig var þetta aftur með prjónanna, var það kanski ég sem drap þá hugmynd í denn......

Þó blogglaus þá er þetta búið að vera snilldar sumar. Mar er bara farin að þakka fyrir hvern dag sem lifrin fær að hvíla sig og er ekki pínd í að neyta áfengis...hvernig ætli hún líti út eftir svona langtímadagdrykkju?? þetta er búið að vera rosalegt sumar, mar hefur bara ekki haft tíma í að ná sér á milli. En audda byrjar nýtt átak á mánudaginn fyrir veturinn. Við Dísa erum nú búnar að fresta þessu átaki í 2 mánudaga núna. En nú er það alvara, hún er hörð konan og ætlar í alvöru að byrja í næstu viku. God damn mar þarf að fara að gera eikkað í þessu, við erum nebblega komnar í keppni.....5 kílóa keppnin er hafin og Snillan fílar ekki að tapa...barist útí rauðann...ég höndla varla sko þegar krakkarnir vinna mig í veiðimann, vonbrigðin eru svo mikil að ég þarf alveg að bíta mig í kinnina, well næstum því....ætla allavegna að koma sterk inn, þannig að nú er Polo og kremkex off the record og fara að nota kortið sitt aftur í ræktinni...Annars verður eiginlega komin tími á að breyta þessu bloggi í dagbók Bergþóru Jónasar....alkóhóleiningar, kalóríur...set inn mynd af mér þegar ég er komin blindfull á "all by my self" stigið. Hehehe syngjandi í tóman vodkaflösku stútinn á Snoopy náttfötunum með bleikar spennur í hárinu.

Ohhh ég var að eignast lítinn frænda 12. ágúst, guttinn lét bíða eftir sér og kíkti á okkur daginn eftir afmælisdag snillunnar, my hann er svo mjúkur og gullfallegur og sætur og krúttlegur og ekkert smá góð lykt af honum. hann er bara með þeim sætari, alveg rólegur lúrandi í vöggunni sinni. Þau eru svo miklar dúllur systkinin og stóra systir alveg ótrúlega góð við hann og stolt af honum.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli



<< Heim